Fyrir 18–25 ára
Sjálfboðaliðastarf í Mwanza, Tansaníu
- Aldur
- 18–25 ára
- Tími
- 7. júní – 19. júlí 2026
- Staður
- Mwanza og nágrenni
Verkefni
Múltikúlti og Vinir Kenía og Tansaníu hafa um árabil sent unga sjálfboðaliða til Mwanza við Viktoríuvatn til að vinna með samstarfsaðilum okkar á staðnum. Sjálfboðaliðar aðstoða í starfsþjálfunarmiðstöð Hakizetu-samtakanna, þar sem ungar stúlkur læra saumaskap og önnur störf, taka þátt í trjárækt og umhverfisfræðslu með Nourish Africa og aðstoða við kennslu í skólum í nágrenni borgarinnar.
Sjálfboðaliðar búa saman í Mwanza, kynnast daglegu lífi heimafólks og vinna með þeim að verkefnum sem skipta máli í samfélaginu. Eins og annað starf Múltikúlti er allt utanumhald unnið í sjálfboðavinnu og sjálfboðaliðar greiða sjálfir ferða- og uppihaldskostnað.
Hefur þú áhuga? Sendu okkur línu á multiferdir@gmail.com og við segjum þér meira.

Kynningarfundur

