29. jan. – 12. feb. 2027 · Kálfatími í Serengeti
Tansanía: Mwanza – Serengeti – Sansibar
Fjórar nætur við Viktoríuvatn, tjaldbúðir í Serengeti þegar gnýir og sebradýr eignast kálfa, Ngorongoro-gígurinn og fimm nætur á Sansibar.
- Dagsetningar
- 29. jan. – 12. feb. 2027
- Lengd
- 14 nætur
- Verð
- 845.000 kr. á mann, m.v. 2 í herbergi
Yfirlit
Búið ykkur undir ferð sem snertir bæði hjarta og sál, upplifið ævintýri sem skilja eftir minningar sem endast út lífið. MúltíKúltí ferðir kynna einstaka ferð í febrúar til Tansaníu og Sansibar.
Ferðin er ekki takmörkuð við þá dagskrá sem kemur hér á eftir, hægt er að skoða ferðalýsingu frá síðustu ferð undir „Fyrri ferðir“ þar sem ýmsu var bætt við dagskrána. Fyrri ferðir →
Leiðin
- Keflavík29. jan.
- Mwanza4 nætur
- Serengeti2 nætur í tjaldi
- Ngorongoro1 nótt í lodge
- Arusha1 nótt
- Sansibar5 nætur
29. jan. – 12. feb. 2027
Ferðalýsing

01Tansanía – 4 nætur í Mwanza við Viktoríuvatnið
Flogið af stað frá Keflavík.
Mwanza er kölluð Rock City, þar sem hún er byggð á hæðum, þöktum stórum steinum. Þar býðst þátttakendum að kynnast starfi Hakizetu-samtakanna, sem reka saumaskóla þar sem ungar stúlkur læra saumaskap og í boði er að láta sauma á sig afrísk föt úr litríkum efnum. Þá verða samtökin Nourish Africa kynnt, en þau vinna að fræðslumálum í umhverfisvernd og fjármagnar ferðin m.a. trjáræktar- og fræðsluverkefni sem unnið er í samvinnu við samtökin. Þá er í boði að sigla út á Sanaane-eyju, sem er minnsti þjóðgarður Tansaníu í 8 mínútna siglingu frá hótelinu, og rölta þar innan um fjölskrúðugt dýralíf. Einnig verður í boði að heimsækja fólk í sveitinni, kynnast lífi þess og högum.

02Safarí í Serengeti – 2 nætur í tjaldi
Að morgni 3. febrúar koma safaríjeppar og sækja hópinn og eftir fund með fararstjórum heldur hópurinn sem leið liggur syðst í Serengeti- og Ngorongoro-þjóðgarðana, þar sem hægt er að sjá stórkostleg villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Gist er í lúxus-tjaldbúðum þar sem fólk sofnar við svæfandi hljóð villtra dýra. Um þetta leyti eru gnýir og sebradýr að eignast kálfa syðst í þjóðgörðunum og eru umsetin ljónum, hlébörðum og blettatígrum. En auk þess má sjá fjölbreytt dýralíf: fíla, buffalóa, flóðhesta, gíraffa, svo eitthvað sé nefnt.

03Ngorongoro-gígur – nótt í lúxus-lodge
Eftir tvær nætur í tjöldum er ekið út úr þjóðgarðinum með viðkomu í Masaíaþorpi og gist í lúxus-„lodge“. Daginn eftir er ekið niður í hinn magnaða Ngorongoro-gíg þar sem finna má langflestar dýrategundir, m.a. The Big Five: fíl, hlébarða, ljón, buffal og nashyrning. Að því loknu er ekið sem leið liggur til Arusha, sem liggur við rætur Kilimanjaro, þar sem gist er um nóttina.

04Sansibar – strandlíf og Stone Town í 5 nætur
Flogið frá Arusha til Sansibar.
Eftir lendingu er haldið beint á strandhótel þar sem hópurinn dvelur þrjár nætur við hvíta ströndina – í algjörri afslöppun, eða hann nýtur afþreyingar sem í boði er; að freista þess að snorkla með höfrungum, skoða kryddbæi eða fá leiðsögn á ýmsar gerðir brimbretta.
Gist er í tvær nætur í Stone Town í Sansibar þar sem má upplifa heillandi blöndu arabískrar, evrópskrar og afrískrar menningar á þröngum götum innan um kryddmarkaði og iðandi mannlíf.
Flogið aftur heim.
Innifalið
- Allt flug, til Tansaníu (Mwanza og Sansibar) frá Íslandi og til baka.
- Öll gisting, á hótelum og í tjöldum.
- Morgunmatur í hótelum og fullt fæði í safarí.
- Safaríferð í Serengeti og Ngorongoro, með akstri, leiðsögumönnum og fullu fæði.
- Akstur til og frá hótelum og í heimsóknir í verkefni.
- Leiðsögn og skipulagning í ferðinni.
- Vegabréfsáritanir.
- Stuðningur við mannúðar- og trjáræktarverkefni.
Ekki innifalið
- Bólusetningar.
- Sérstakar ferða- og farangurstryggingar.
- Kostnaður á hótelum, s.s. þvottur, miníbar, símtöl o.fl.
- Innritaður farangur.
Verð (miðað við 2 í gistingu)
Hafðu samband til að tryggja pláss – takmörkuð sæti!
MúltíKúltí ferðir – ferðumst með tilgangi.
Hin ferðin · 11. – 27. júní 2027

