Dagskrá 2026–2027

Ferðir

Tvær hópferðir á næsta ári, sjálfboðaliðaferð fyrir ungt fólk og Indland á sjóndeildarhringnum. Allar ferðir eru skipulagðar í sjálfboðavinnu og hluti verðsins rennur beint til verkefna á staðnum.

Fíll á sléttunni undir bláum himni í Serengeti Kálfatími í Serengeti
29. jan. – 12. feb. 2027 · 14 nætur

Tansanía: Mwanza – Serengeti – Sansibar

Fjórar nætur í Mwanza við Viktoríuvatn með heimsóknum til Hakizetu og Nourish Africa, tvær nætur í lúxus-tjaldbúðum syðst í Serengeti þegar gnýir og sebradýr eignast kálfa, Ngorongoro-gígurinn og loks fimm nætur á Sansibar – strandlíf og Stone Town.

  1. Keflavík29. jan.
  2. Mwanza4 nætur
  3. Serengeti2 nætur í tjaldi
  4. Ngorongoro1 nótt í lodge
  5. Arusha1 nótt
  6. Sansibar5 nætur
Big FiveKálfatímiVatnsverkefniStone TownStrönd
845.000 kr.m.v. 2 í herbergi · allt flug og gisting innifalin
Ferðahópur við skilti Serengeti-þjóðgarðsins The Great Migration
11. – 27. júní 2027 · 16 nætur

Kenía, Tansanía og Sansibar

Naíróbí með Karen Blixen-safninu, Little Bees-skólanum og Haven Rescue Home. Mwanza við Viktoríuvatn, safarí á slóðum The Great Migration í Serengeti, Ngorongoro-gígurinn og að lokum Stone Town og hvítar strendur Sansibar.

  1. Keflavík11. júní
  2. Naíróbí3 nætur
  3. Mwanza3 nætur
  4. Serengeti2 nætur í tjaldi
  5. Ngorongoro1 nótt í lodge
  6. Sansibar5 nætur
Great MigrationBig FiveLittle BeesStone TownStrönd
845.000 kr.m.v. 2 í herbergi · allt flug og gisting innifalin