11. – 27. júní 2027 · The Great Migration

Kenía, Tansanía og Sansibar

Naíróbí, Mwanza við Viktoríuvatn, safarí á slóðum The Great Migration, Ngorongoro og að lokum Stone Town og hvítar strendur Sansibar.

Dagsetningar
11. – 27. júní 2027
Lengd
16 nætur
Verð
845.000 kr. á mann, m.v. 2 í herbergi
Tryggja sæti

Yfirlit

Búið ykkur undir ferð sem snertir bæði hjarta og sál, upplifið ævintýri sem skilja eftir minningar sem endast út lífið. MúltíKúltí ferðir kynna einstaka ferð í júní til Kenía, Tansaníu og Sansibar.

Ferðin er ekki takmörkuð við þá dagskrá sem kemur hér á eftir, hægt er að skoða ferðalýsingu frá síðustu ferð undir „Fyrri ferðir“ þar sem ýmsu var bætt við dagskrána. Fyrri ferðir →

Leiðin

  1. Keflavík11. júní
  2. Naíróbí3 nætur
  3. Mwanza3 nætur
  4. Serengeti2 nætur í tjaldi
  5. Ngorongoro1 nótt í lodge
  6. Sansibar5 nætur

11. – 27. júní 2027

Ferðalýsing

01Kenía – 3 nætur í Naíróbí

11. júní

Flogið af stað frá Keflavík.

12. – 15. júní

Ferðin hefst í Naíróbí þar sem í boði er m.a. að heimsækja Karen Blixen-safnið þar sem höfundurinn bjó og var vettvangur bókar hennar Jörð í Afríku. Þá verður farið á Masaí-markað og borgin skoðuð. Hópurinn á kost á að kynna sér Little Bees-skólann í fátækrahverfi Naíróbí sem Vinir Kenía og Tansaníu hafa stutt í yfir 20 ár. Einnig er í boði að heimsækja Önnu Þóru í Haven Rescue Home, en hún hefur í mörg ár haldið úti heimili fyrir ungar mæður á aldrinum 12–18 ára og veitt þeim menntun, sálfræðistuðning og opnað fyrir ný tækifæri í lífinu.

02Mwanza í Tansaníu – 3 nætur við Viktoríuvatnið

16. – 19. júní

Næst er haldið til Mwanza sem kölluð er Rock City, þar sem hún er byggð á hæðum, þöktum stórum steinum. Þar býðst þátttakendum að kynnast starfi Hakizetu-samtakanna, sem reka saumaskóla þar sem ungar stúlkur læra saumaskap og í boði er að láta sauma á sig afrísk föt úr litríkum efnum. Þá verða samtökin Nourish Africa kynnt, en þau vinna að fræðslumálum í umhverfisvernd og fjármagnar ferðin m.a. trjáræktar- og fræðsluverkefni sem unnið er í samvinnu við samtökin. Þá er í boði að sigla út á Sanaane-eyju, sem er minnsti þjóðgarður Tansaníu í 8 mínútna siglingu frá hótelinu, og rölta þar innan um fjölskrúðugt dýralíf.

03Safarí í Serengeti – 2 nætur í tjaldi

19. – 21. júní

Að morgni 19. júní koma safaríjeppar og sækja hópinn og eftir fund með fararstjórum heldur hópurinn sem leið liggur í Serengeti-þjóðgarðinn, þar sem hægt er að sjá stórkostleg villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi. Gist er í lúxus-tjaldbúðum þar sem fólk sofnar við svæfandi hljóð villtra dýra. Í safaríinu er fylgt The Great Migration, þar sem milljónir hjarðdýra stefna í norður í fylgd rándýra af öllu tagi.

04Ngorongoro-gígur – nótt í lúxus-lodge

21. – 22. júní

Eftir tvær nætur í tjöldum er ekið út úr þjóðgarðinum með viðkomu í Masaíaþorpi og gist í lúxus-„lodge“. Daginn eftir er ekið niður í hinn magnaða Ngorongoro-gíg þar sem finna má langflestar dýrategundir, m.a. The Big Five: fíl, hlébarða, ljón, buffal og nashyrning. Að því loknu er ekið sem leið liggur á Kilimanjaro-flugvöllinn og flogið í um klukkustund til Sansibar.

05Sansibar – Stone Town og strandlíf í 5 nætur

22. – 27. júní

Gist er í tvær nætur í Stone Town í Sansibar þar sem má upplifa heillandi blöndu arabískrar, evrópskrar og afrískrar menningar á þröngum götum innan um kryddmarkaði. Síðan er haldið á strandhótel þar sem hópurinn dvelur þrjár nætur við hvíta ströndina – í algjörri afslöppun, eða hann nýtur afþreyingar sem í boði er; að freista þess að snorkla með höfrungum, skoða kryddbæi eða fá leiðsögn á ýmsar gerðir brimbretta.

27. júní

Flogið aftur heim.

Innifalið

  • Allt flug, til Kenía og Tansaníu (Mwanza og Sansibar) frá Íslandi og til baka.
  • Öll gisting, á hótelum og í tjöldum.
  • Morgunmatur í hótelum og fullt fæði í safarí.
  • Safaríferð í Serengeti og Ngorongoro, með akstri, leiðsögumönnum og fullu fæði.
  • Akstur til og frá hótelum og í heimsóknir í verkefni.
  • Leiðsögn og skipulagning í ferðinni.
  • Vegabréfsáritanir.
  • Stuðningur við mannúðar- og trjáræktarverkefni.

Ekki innifalið

  • Bólusetningar.
  • Sérstakar ferða- og farangurstryggingar.
  • Kostnaður á hótelum, s.s. þvottur, miníbar, símtöl o.fl.
  • Innritaður farangur.

Verð (miðað við 2 í gistingu)

845.000 kr.64.000 kr. bætast við óski fólk eftir að vera eitt í herbergi í hótelum.

Hafðu samband til að tryggja pláss – takmörkuð sæti!

MúltíKúltí ferðir – ferðumst með tilgangi.

Hin ferðin · 29. jan. – 12. feb. 2027

Tansanía: Mwanza – Serengeti – Sansibar