Júní 2025
Kenía – Tansanía – Sansibar

Hópurinn lenti í Naíróbí þann 8. júní, þar sem dvalið var í 3 nætur á Ibis Styles-hótelinu. Fyrsta daginn var farið í heimsókn í National Museum í Nairobi, þar sem skoðað var ýmislegt tengt sögu og menningu Kenía, m.a. beinagrind Lucyar, sem er gjarnan litið á sem formóður mannkyns, en beinagrind hennar fannst í Kenía. Næsta dag heimsótti hluti hópsins Sheldrick Wildlife Trust, sem er staður fyrir munaðarlausa fílsunga og á sama tíma heimsótti annar hluti Haven-heimilið, þar sem Anna Þóra Baldursdóttir rekur heimili fyrir táningsmæður og börn þeirra. Síðar sama dag heimsótti hluti hópsins annað heimili fyrir ungar stúlkur, en það er rekið af Tracey Kadada, tónlistar- og baráttukonu. Þar fékk hópurinn m.a. kennslu í afrískum dönsum, en nokkur munur var á mjaðmahreyfingum Íslendinga og innfæddra, öllum til gamans. Þriðja daginn var farið í heimsókn í Little Bees-skólann í Naíróbí sem Vinir Kenía og Tansaníu hafa stutt í áratugi. Þar var tekið vel á móti hópnum sem fékk að kynnast skólastarfi í talsvert mikið öðruvísi aðstæðum en Íslendingar eiga að venjast. Um kvöldið var farið á danssýningu, Cat’s Dance Show, þar sem einnig var í boði að bragða kjöt af ýmsum dýrum sem er ekki í boði á hverjum degi, eins og krókódílum o.fl.
Þá lá leiðin til Mwanza í Tansaníu, með viðkomu á Kilimanjaro-flugvellinum. Dvalið var á hótel Tilapia við Viktoríuvatnið og einnig gist þar í þrjár nætur. Hluti hópsins fór í ökuferð með leiðsögn um Mwanza á meðan annar hluti gekk um bæinn. Næsta dag var farið í heimsókn í Hakizetu-miðstöðina, þar sem hópurinn fékk kynningu á starfseminni og tekin voru mál af ferðalöngum fyrir skyrtur, kjóla og fleiri flíkur, en þar er rekin starfsþjálfunarmiðstöð fyrir ungar stúlkur sem eru að læra að sauma. Flíkurnar voru svo afhentar daginn eftir. Næsta dag var hópurinn sóttur af rútu og ekið sem leið lá í skóla, þar sem framkvæmt hafði verið fræðslu- og trjáræktarverkefni, en það er í samvinnu Vina Kenía og Tansaníu, Nourish Africa og skóla í nágrenni Mwanza. Verkefnið fór af stað í febrúar, fyrir regntímabilið, og fengum við að sjá árangur þess, auk þess sem barnahópur hélt danssýningu með hefðbundnum afrískum dönsum. Síðar um daginn fór hópurinn út á Sanaane-eyju, sem er í um 7 mínútna siglingu frá hótelinu og er minnsti þjóðgarður í Tansaníu. Þar gekk hópurinn um eyjuna á meðal ýmissa villtra dýra.
Að morgni 14. júní komu þrír safarí-jeppar og eftir kynningu fararstjóra var haldið af stað í safarí. Gist var í 2 nætur í tjöldum í Kirimu Camps og ekið um stórfengilegan Serengeti-þjóðgarðinn á slóðum The Great Migration, þar sem má sjá þúsundir dýra á ferðinni á leið norður á bóginn. Síðan var haldið áfram í átt að Ngorongoro-gígnum, með viðkomu í masaíaþorpi og gist á Octagon Lodge. Daginn eftir var ekið niður í magnaðan gíginn, þar sem finna má ótrúlega fjölbreytt dýralíf. Eftir það var ekið til Arusha og gist á Mvuli-hóteli.
Eldsnemma að morgni 18. júní var flogið frá Kilimanjaro-flugvelli til Sansibar. Þar tóku við 3 nætur á Shooting Star Boutique-hótelinu við hvítar strendur sem eiga varla nokkurn sinn líka. Sum fóru í snorkling, kryddferðir eða gerðu eitthvað annað sér til dundurs. Fjórðu nóttinni var síðan varið í Mizingani Seafront-hótelinu í Stone Town, sem er suðupottur evrópskra, afrískra og arabískra áhrifa, áður en flogið var af stað heim á leið.


















